24febrúar
Þetta er kannski engar shocking-news en ég hef ákveðið að ljúka bloggferlinum mínum.. Hef ég ákveðið að gera það við enga athöfn eða kveðja með neinum glæsibrag.
Ég þakka vinum og vönduðum fyrir hlýhug.
HAJ a.k.a Jaws a.k.a. The tiger shark..
11desember
MMmmmm mig langar í einn svona löver...
Ég er bara hamingjusöm núna.. Sit á kaffihús að borða beyglu með rjómaosti og drekk mjúkan latte með.. Svona á lífið að vera, chill...hehe, enda síðasta vika ein sú mest strembna og tilvistakreppuríkasta sem ég hef upplifað á minni ævi..Úff en hún endaði ágætlega, yfirferðin var ekki aftaka með löngum aðdraganda sem innihélt svæsnar pyntingar.. Heldur bara uppbyggileg krítík léttkrydduð með hóli... En annars er ég ekki alveg búin í skólanum þó að það versta sé yfirstaðið, þarf að gera 2 skrifleg verkefni og svo er einhverskonar viðtal næsta miðvikudag með deilda og sviðsstjóra arkitektúrs, veit eiginlega ekki hvort ég eigi að kvíða fyrir því..? En jæja ætla að fara að skoða jólagjafir hansa ástmönnum og konum..
19nóvember
Já, það er búið aðvera drullu kalt uppá síðkastið, örugglega svona 15 stiga frost þegar búið að telja vindinn með jukk!
En síðstliðna daga er ég búin að vera gera ritgerðir og það er búið að vera ógeðslega gaman, held ég hafi bara aldrei skemmt mér jafnvel yfir neinu svona skólaverkefni...Alveg meiriháttar. En það sem er reyndar búið að toppa ritgerðasmíðina er það að Óli a.k.a The lover er að koma í "heimsókn" næsta föstudag, minna en vika í það! Og svo komu yndislegu foreldrar mínir frá USA á föst og gáfu mér nokkra pakka... Mamma er svo mikil ofur gella að hún keypti handa mér Jonathans shampoo og Conditoner, Þið dömurnar sem læðist hingað á síðuna ættuð nú að kannast við kjellinn frá því síðasta vetur þegar hann var með veruleika þáttin The cut eða eitthvað... Foli,.. ha? Kannski umdeildur foli.. Og svo kom múttan með Crest tannhvítunar stripes handa minni (ég bað um það persónulega, hefði orðið pínu móðguð ef mamma hefði tekið frumkvæðið á það.
Svo fór ég síðasta fimmtudag í USA sendiráðið og það var örugglega kaldasti dagurinn á árinu þá. því þegar ég kem þá vill hel....! vörðurinn ekki hleypa mér inní sendiráðið fyrr en ég er búin að sýna honum ökuskirteinið mitt! Helvítis göndull.. Ég að frjósa í hel og var ekki alveg að finna veskið mitt í öllu draslinu sem ég tek alltaf með mér hvert sem er... En ég fékk að koma inn í fyrir rest og tók þá ekki við minni kuldi.. Starfsfólkið allt frekar ópersónulegt og kaldranalegt... Mí not feeling it sko...
Og heyriði, hver ákvað að vera ógeðeslega sniðugur og dingla kl 7 ímorgun hjá mér og banka svo á gluggan ha? Sem betur fer voru mamma og pabbi enþá hér annars hefði mér ekki verið sama...Ég fór sem sagt ekki til dyra enda ekki alveg í múnderingunni fyrir það...
Komment takk
16nóvember
Ég er ekki mikill sökker fyrir svona hlutum en mér fannst þetta einstaklega góð tips varðandi fegurð og ekki skemmir fyrir að þau komi frá Miss pretty face Audry Hepburn..
For attractive lips, speak words of kindness...
For lovely eyes, seek out the good in people.
For a slim figure, share your food with the hungry.
For beautiful hair, let a child run his/her fingers through it once a day.
For poise, walk with the knowledge that you never walk alone...
People, even more than things, have to be restored, renewed, revived, reclaimed, and redeemed; never throw out anyone.
Remember, if you ever need a helping hand, you will find one at the end of each of your arms.
As you grow older, you will discover that you have two hands; one for helping yourself, and the other for helping others.
07nóvember
Vá, þetta leið fáranlega fljótt.. En það var líka FÁRANLEGA gaman!
Vertrafríið byrjaði eiginlega á loka-lokaskilum á verkefninu okkar í kúrsnum markaður og form. Svona lokahátíð sem haldin var í Hafnarhúsinu undir nafninu Rjómi, kannist við það?
En það var rosa gaman og alveg ótrúlega góð mæting, gaman að fá viðbrögð frá fólki við því sem maður er að gera og svona.:)
En daginn eftir ákvað ég að skella mér til Guddos, noros og lillos í DK, var það yndislegt í alla staði og litli gaurinn ekki smá sætur enda svo sem ekki langt að sækja það hehe. En ég varð alveg ástfangin af Köben (eflaust svona í 3 sinn eða svo) og gæti alveg hugsað mér að vera þarna eitthvað í framtíðinni, ekki skemmir það fyrir að það er búið að opna Urban Outfitters búð á strikinu, alveg uppahalds!!! Svo var fengið sér sushi, "frappochino" og rosa hollustu safa með gingsen svo maður hefði nú orku í búðarápið. Restin af fríinu fór nú bara í chill enda veitti ekki af eftir þessa rosa skólatörn þarna á undan, pjúfff!!!! En jæja, best að leggja loka hönd á stop-motion myndina mína.. á víst að skila eftir 2 klst.. Hurrei!
P.s. setti inn alveg 10 myndir frá Itlaiu ferðinni minni:) ALVEG HEILAR 10!!!! reyni að vera duglegri í framtíðinni hehe yeah ræt...
26október
NÚ ER ÉG ENDANLEGA KOMIN MEÐ ÓGEÐ AF RJÓMA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
22október
hvað er að gerast? Bara einn búinn að komenta hjá mér? Er ég búin að missa sjarman - Er ég laus við mojo?
Það er greinilegt að mínir dyggustu aðdáendur hafa snúið við mér baki.. Það er greinilegt að maður á ekki marga vini þegar allt er á botninn hvolft.... Það er nú meira!
En annars er ég að missa mig í skólanum þessa dagana, HR ingar eru yndislegt fólk, dugleg og metnaðarfull...Fallegt líka. Við erum á góðu róli me okkar verkefni, erum að gera arkiteka -agenzy sem komu íslenskum arktektum á framfæri erlendis. Þjónusta sem vantar algjörlega! Þetta er einsdæmi í heiminum þannig að þessi tillaga verður pottþétt keypt af okkur og við verðum öll óggisslega rík og hamingjusöm..
Tillagan verðu kynnt á hönnunarsýningu sem kallast Rjómi. Getið skoðað það betur á rjomi.is Svo mæli ég með því að fól mæti næsta laugardag á hönnunarsýninguna, þar verða arkitektar, graffarar, 3d people og margt spennó.. Allt sem er spennandi í hönnun í dag.
En jæja lömbin mín, ég er farin til Sveppó bró
Ble
18október
Kyepti mér miða til danmark í gær..... 19.000 kjell..... Ekki slæmt, þetta verður reyndar ekki langt stop en skemmtilegt mun það verða, sjá litla sæta gaurinn sem nýkominn í hópinn:) Veivei!
Og já Gudda mín, fæ ég ekki örugglega að gista hjá þér sæta?
13október
Er í tíma og gaurinn er eitthvad að missa sig uppá svidi.....Media Value..Hverjum er ekki sama um þad? Mér allavega....En annars er ég að blogga núna dvi ad manneskjan sem situr vid hlid mer a haegri hönd er buin ad hota mer ollu illu ef eg drullist ekki til thess ad blogga! Nuna!
En svona ef eg fer uti skemmtilega hluti tha eru sidustu vikur bunar ad vera hreint agatar...For a eitthvad akureyrardjamm sidustu helgi sem var skemmtilega sorglegt, nog af okeypis bjor haha! Svo var natturulega sushi-gerda kvöld hja Rognu arki og that var gebbad... Ekki sma gaman hja okkur gellunum, alveg Yeah! gaman!... En i dag er fostudagur og thad er vist oktober-fest..Sem thydir meiri okeypis bjor...Var lika ad spa i ad kikja a Vego i kvoldmat,,ohh eg er svo cosmopolitan...Djííí.....
Later dyrin min...
P.s. Einhvurra hluta vegna getur thetta drasl ekki gert isl stafi...Glatad, af hverju var eg ad skipta um blog?
05október
Já ég ákvað að fara milliveginn og velja bloogar.is....Var komin með soldið ógó af central,
annars er ég veikur hundur núna, frekar fúlt:( Alveg ógeðslega leiðinlegt að vera með slen, hor og hausverk, sérstaklega þegar maður á að vera að gera eitthvað allt annað! Já það er nóg að gera í skólanum, eigum að skila einhverskonar niðurstöðu á föst og vandamálið er að við höfum enga NIÐURSTÖÐU!
Og get svo ekki beðið eftir helginni, foreldrar að koma í heimsókn, djamm á laug og svo sushi-festival hjá MC Ragnmeister....MMmm æðislegt planó!
Hafið það annars gott people...Ciao!